Fótbolti

Nýi þjálfarinn hjá Barcelona ætlar að vinna alla leikina á tímabilinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tito Vilanova.
Tito Vilanova. Mynd/AFP
Tito Vilanova stýrir fyrsta deildarleiknum sem þjálfari Barcelona í kvöld en þessi fyrrum aðstoðarmaður Pep Guardiola tók við Barca-liðinu af Guardiola í sumar. Barcelona mætir Real Sociedad á heimavelli í fyrstu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld og er leikurinn í beinni á Stöð 2 Sport.

„Ég vonast til að vinna alla titla í boði. Við erum með það sterkan hóp að mínu mati að við ættum að geta unnið alla leikina okkar á þessu tímabili," sagði Tito Vilanova hvergi banginn.

Barcaelona vann fjórtán titla á fjórum árum undir stjórn Josep Guardiola en Vilanova átti mikinn þátt í þeim sem hægri hönd Guardiola.

„Það verður vissulega erfitt að vinna svona marga titla en það á við alla þjálfara og líka Guardiola ef hann væri að byrja upp á nýtt í dag," sagði Vilanova.

Barcaelona varð spænskur meistari þrjú fyrstu tímabilin undir stjórn Guardiola en tapaði síðan titlinum til Real Madrid á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×