Fótbolti

Hønefoss nálægt því að landa óvæntum sigri

Stefán Hirst Friðriksson skrifar
Kristján Örn Sigurðsson, leikmaður Hønefoss hefur spilað 53 landsleiki fyrir Ísland.
Kristján Örn Sigurðsson, leikmaður Hønefoss hefur spilað 53 landsleiki fyrir Ísland.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson og Kristján Örn Sigurðsson voru báðir í vörn nýliða Hønefoss í dag þegar liðið tók á móti toppliði Strømsgodset í efstu deild Noregs. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli en Íslendingaliðið var óheppið að vinna ekki leikinn.

Hønefoss komust yfir snemma í leiknum með marki frá Riku Riski og héldu þeir forystunni þangað til á 88. mínútu þegar toppliðinu tókst að jafna metin.

Nýliðar Hønefoss hafa staðið sig frábærlega á tímabilinu en liðið situr í 5. sæti deildarinnar eftir leikinn í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×