Fótbolti

Enn tapar Halmstad stigum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðjón Baldvinsson og Kristinn Steindórsson voru í byrjunarliði Halmstad sem tapaði 3-1 á útivelli gegn Falkensberg í b-deild sænska boltans í gærkvöldi.

Halmstad komst yfir snemma í síðari hálfleik en þrjú mörk á níu mínútum hjá heimamönnum gerðu út um leikinn. Jónas Guðni Sævarsson sat allan tímann á bekknum hjá Halmstad.

Halmstad hefur aðeins fengið tvö stig úr síðustu þremur leikjum sínum. Liðið situr nú í fjórða sæti deildarinnar með 28 stig, stigi á eftir Ängelholm sem situr í 3. sæti sem gefur þátttökurétt í umspili um sæti í efstu deild.

Öster, lið Davíðs Þórs Viðarssonar, situr í efsta sæti með 44 stig. Brommapojkarna kemur næst með 36 stig.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×