Fótbolti

Mascherano búinn að gera nýjan samning við Barcelona

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Javier Mascherano og Lionel Messi.
Javier Mascherano og Lionel Messi. Mynd/Nordic Photos/Getty
Argentínumaðurinn Javier Mascherano hefur samþykkt að gera nýjan samning við Barcelona og mun nýi samningurinn ná til ársins 2016. Mascherano lék áður með Liverpool en kom til Barca fyrir tveimur árum.

Mascherano á reyndar eftir að skrifa undir samninginn en það er bara formsatriði samkvæmt fréttum frá Barcelona. Eftir að Mascherano skrifar undir verður hægt að kaupa hann á 100 milljónir evra.

Mascherano er orðinn 28 ára og kom til Barcelona sem miðjumaður. Honum gekk ekki alltof vel að komast í liðið til að byrja með en hefur síðan unnið sér fast sæti sem miðvörður.

Lionel Messi er ánægður með landa sinn og hefur látið hafa eftir sér að Mascherano hafi ekki átt einn lélegan leik síðan að Pep Guardiola færði hann aftur í vörnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×