Fótbolti

Matthías Vilhjálmsson skoraði eitt mark í sigri Start

Stefán Árni Pálsson skrifar
Matthías í leik með FH á sínum tíma
Matthías í leik með FH á sínum tíma
Start bar sigur úr býtum gegn Bryne, 3-1, í norsku fyrstu deildinni í knattspyrnu í dag en okkar maður Matthías Vilhjálmsson skoraði eitt mark fyrir Start í leiknum.

Marius Helle gerði fyrsta mark leiksins fyrir Bryne en það var Glenn Andersen sem jafnaði metin aðeins sjö mínútum síðar.

Matthías Vilhjálmsson misnotaði síðan vítaspyrnu nokkrum mínútum síðar. Dardan Dreshaj kom Start yfir 2-1 rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og þannig var staðan í hálfleik.

Matthías skoraði þriðja mark heimamanna á 73. mínútu og því fór sem fór, 3-1 fyrir Start sem er sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með 34 stig, níu stigum á undan Ullensaker/Kisa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×