Fótbolti

Íslendingaliðunum í Svíþjóð gekk illa

Helgi Valur Daníelsson.
Helgi Valur Daníelsson.
Þrír Íslendingar voru á ferðinni með liðum sínum í sænsku úrvalsdeildinni í dag og náði ekkert Íslendingaliðanna að hampa sigri.

Hjörtur Logi Valgarðsson var í liði IFK Göteborg og spilaði allan leikinn í 1-1 jafntefli gegn Gefle.

Ari Freyr Skúlason spilaði allan leikinn fyrir Sundsvall sem sótti Mjällby heim og tapaði, 1-0.

Helgi Valur Daníelsson lék sömuleiðis allan leikinn fyrir sitt lið, AIK, sem tapaði, 2-0, gegn Åtvidaberg.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×