Fótbolti

SönderjyskE flengdi nýliðana

Eyjólfur Héðinsson í leik með SönderjyskE.
Eyjólfur Héðinsson í leik með SönderjyskE.
Íslendingaliðið SönderjyskE vann stórsigur, 6-1, á nýliðum Randers í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Eyjólfur Héðinsson var í byrjunarliði SönderjyskE í dag en náði ekki að komast á blað að þessu sinni. Hann var tekinn af velli á 62. mínútu.

Hallgrímur Jónasson var ekki í leikmannahópi liðsins að þessu sinni enda meiddur.

Þetta var leikur í fyrstu umferð dönsku deildarinnar sem er að rúlla af stað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×