Sport

Murray í fjórðungsúrslitin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Andy Murray í morgun.
Andy Murray í morgun. Nordic Photos / Getty Images
Skotinn Andy Murray komst loksins áfram í fjórðungsúrslit Wimbledon-mótsins í tennis eftir að leik hafði verið frestað tvívegis vegna veðurs.

Murray hafði betur gegn Marin Cilic frá Króatíu, 7-5, 6-2 og 6-3. Viðureignin hófst í gær en var hætt í öðru setti vegna veðurs. Leikmennirnir byrjðu svo aftur að spila í hádeginu en þurftu að hætta aðeins fimm mínútum síðar vegna rigningar.

Klukkutíma síðar voru leikmenn aftur kallaðir út á völl og var þá hægt að klára viðureignina. Murray lenti ekki í teljandi vandræðum með Cilic og mætir annað hvort David Ferrer og Juan Martin del Potro í næstu umferð. Þeir eigast nú við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×