Fótbolti

Higuain fer ekki frá Real Madrid

Það er mikið rætt og ritað um framtíð argentínska framherjans Gonzalo Higuain þessa dagana enda eftirsóttur af mörgum ríkustu liðum Evrópu.

Umboðsmaður hans hefur nú reynt að slá á sögusagnirnar með því að lýsa því yfir að Higuain sé ekki á förum frá Real Madrid.

"Gonzalo mun ekki fara neitt. Hann mun klára sinn samning hjá Real Madrid," sagði umbinn en Higuain er samningsundinn Real til ársins 2016.

PSG er á meðal þeirra liða sem eru til í að greiða afar vel fyrir þjónustu Argentínumannsins sterka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×