Fótbolti

Fjölmiðlar munu ekki eyðilegga vinskap okkar Ronaldo

Marcelo og Ronaldo eru miklir mátar.
Marcelo og Ronaldo eru miklir mátar.
Brasilíumaðurinn Marcelo hjá Real Madrid vill greinilega ekki komast í ónáð hjá liðsfélaga sínum Cristiano Ronaldo því hann hefur haft fyrir því að láta leiðrétta orð sem hann á að hafa sagt um Lionel Messi.

Haft var eftir Marcelo að Messi væri besti leikmaður heims en ekki Ronaldo. Marcelo segir að orð hans hafi verið rangtúlkuð.

"Það var allt tekið úr samhengi. Það sem ég var að segja var að Messi hefði síðast verið valinn besti knattspyrnumaður heims og væri handhafi þess titils. Fyrir mér er Ronaldo sá besti án vafa," sagði Marcelo hvass.

"Fjölmiðlar munu ekki eyðilegga okkar vinskap. Það kemur ekki til greina."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×