Fótbolti

Bikarinn á loft hjá Arnóri og félögum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd / Twitter-síða Arnórs Smárasonar
Arnór Smárason og félagar í Esbjerg lögðu Fredericia 1-0 á útivelli í lokaumferð b-deildar danska fótboltans í kvöld. Leikmenn Esbjerg gátu fagnað frábæru tímabili í leikslok og bikarinn fór á loft.

Esbjerg tryggði sæti sitt í efstu deild á nýjan leik fyrir þó nokkru síðan. Esbjerg hélt þó uppteknum hætti út leiktíðina, vann þrjá síðustu leiki sína og hefur 17 stiga forskot á Randers í öðru sæti deildarinnar. Randers á reyndar eftir síðasta leik sinn en liðið tekur á móti Skive á sunnudaginn.

Arnór spilaði með Esbjerg í kvöld og Skagamaðurinn birti meðfylgjandi mynd á Twitter-síðu sinni fyrr í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×