Fótbolti

Modric gæti verið á leiðinni til Real Madrid

Stefán Árni Pálsson skrifar
Modric er hér hægra megin.
Modric er hér hægra megin. Mynd. / Getty Images
Spænsku meistararnir í Real Madrid ætla samkvæmt enskum fjölmiðlum að festa kaup á Luka Modric, leikmann Tottenham, í sumar en kaupverðið mun vera um 25 milljónir punda.

Lassana Diarra, leikmaður Real Madrid, myndi einnig fara yfir til Tottenham í skiptum fyrir Modric en Diarra lék á sínum tíma undir stjórn Harry Redknapp, knattspyrnustjóra Tottenham, þegar hann stýrði Portsmouth.

Modric hefur ekki enn skrifað undir nýjan samning við Tottenham og ætlar að gera upp hug sinn eftir Evrópumótið í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×