Íslenski boltinn

Gordon með tvö mörk í sigri Eyjakvenna í Mosfellsbænum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Anton
Shaneka Jodian Gordon kom inn í byrjunarlið ÍBV í fyrsta sinn í sumar og þakkaði fyrir sig með því að skora tvö fyrstu mörkin í 3-0 útisigri ÍBV á Aftureldingu í kvöld en þetta var leikur í 4. umferð Pepsi-deildar kvenna í fótbolta.

ÍBV kom öllum á óvart með því að vinna Valsliðið í fyrsta leik mótsins en hafði síðan tapað tveimur leikjum í röð þar af öðrum þeirra á móti nýliðum FH.

Shaneka Jodian Gordon skoraði mörkin sín á 39. og 54. mínútu en hún hafði komið inn á sem varmaður í þremur fyrstu leikjunum. Vesna Smiljkovic innsiglaði síðan sigurinn á 62. mínútu.

Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×