Fótbolti

Barcelona kvaddi deildina með jafntefli

Messi náði ekki að skora í kvöld.
Messi náði ekki að skora í kvöld.
Það var ekki mikil reisn yfir Barcelona-liðinu í kvöld er það lék sinn lokaleik í deildinni. Barcelona gerði þá 2-2 jafntefli við Real Betis.

Sergio Busquets kom Barcelona yfir snemma leiks og þannig stóðu leikar í hálfleik.

Í upphafi síðari hálfleiks kom vendipunktur leiksins. Dani Alves, leikmaður Barcelona, lét þá reka sig af velli fyrir heimskulega tæklingu. Hans áttunda rauða spjald í spænska boltanum.

Leikmenn Betis gengu á lagið og Ruben Castro jafnaði leikinn tuttugu mínútum fyrir leikslok og kom Betis yfir aðeins þrem mínútum síðar.

Barcelona hafst þó ekki upp og Seydou Keita jafnaði metin með góðu skallamarki í uppbótartíma.

Barcelona á einn leik eftir á tímabilinu. Bikarúrslitaleik gegn Athletic Bilbao þann 25. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×