Fótbolti

Alfreð skoraði | Gunnar Heiðar og félagar töpuðu 6-0

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alfreð í leik með Helsingborg.
Alfreð í leik með Helsingborg. Nordic Photos / Getty Images
Alfreð Finnbogason var á skotskónum með sænska liðinu Helsingborg í kvöld þegar að liðið gerði 1-1 jafntefli við Kalmar.

Alfreð kom sínum mönnum yfir með marki á 41. mínútu en hann var svo tekinn af velli sjö mínútum fyrir leikslok, skömmu eftir að Kalmar jafnaði metin.

Alfreð hefur nú skorað fimm mörk fyrir Helsingborg í ellefu leikjum á tímabilinu og er markahæsti leikmaður liðsins.

Þá fór illa fyrir Gunnari Heiðari Þorvaldssyni og félögum í Norrköping sem steinlágu fyrir Häcken á útivelli, 6-0. Abdul Majeed Waris skoraði fimm mörk fyrir Häcken en Gunnar Heiðar spilaði allan leikinn.

Helgi Valur Daníelsson var ekki í leikmannahópi AIK sem gerði 2-2 jafntefli við Örebro á útivelli. Eiður Aron Sigurbjörnsson var ekki í hópnum hjá Örebro en hann hefur ekkert fengið að spila á leiktíðinni.

Helsingborg er í fjórða sæti deildarinnar með sautján stig, Norrköping því fimmta með sextán og AIK í sjötta sætinu með fimmtán stig. Örebro er á botninum með fjögur stig og er liðið enn að bíða eftir fyrsta sigrinum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×