Fótbolti

Mourinho vill fá Zlatan Ibrahimovic til Real Madrid

Jose Mourinho og Zlatan Ibrahimovic þekkjast vel en sænski framherjinn lék undir stjórn Mourinho hjá Inter.
Jose Mourinho og Zlatan Ibrahimovic þekkjast vel en sænski framherjinn lék undir stjórn Mourinho hjá Inter. Getty Images / Nordic Photos
José Mourinho, þjálfari spænska stórliðsins Real Madrid, er strax farinn að huga að næsta tímabili en liðið getur tryggt sér meistaratitilinn á Spáni á morgun, miðvikudag. Samkvæmt frétt El Confidencial er Mourhino sagður hafa mikinn áhuga á að fá sænska framherjann Zlatan Ibrahimovic í lið sitt fyrir næstu leiktíð. Ibrahimovic er samningsbundinn AC Milan en hann lék áður með Barcelona á Spáni.

Mourinho á að hafa rætt við Ibrahimovic fyrir um fimm vikum síðan. Í sænska dagblaðinu Aftonbladet er vitnað í samtal þeirra: Skilaboðin voru einföld frá Mourinho. „Ef þú hefur áhuga á að koma til Real Madrid þá skal ég gera allt sem ég get til þess að það gangi upp."

Heimildamaður El Confidencial segir að portúgalski þjálfarinn leggi gríðarlega áherslu á að fá Ibrahimovic í liðið. Real Madrid tapaði í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu gegn FC Bayern München frá Þýskalandi en liðið stefnir hraðbyri á að landa spænska meistaratitlinum.

Zlatan var inntur eftir þessum fréttum á sunnudag. „Ég hef ekkert hugsað um þetta og ég les yfirleitt ekki það sem er skrifað um mig. Mér líður vel í Mílanó og ég hef lært það að maður á að vera þar sem manni líður vel – þrátt fyrir að það sé freistandi að takast á við nýjar áskoranir," sagði Zlatan við fréttamenn á sunnudaginn.

Samkvæmt heimildum spænska íþróttadagblaðsins Marca hefur Mourinho nú þegar skrifað undir langtíma samning við Real Madrid. Og í þeim samningi er kveðið á um að hann fái meiri völd þegar kemur að leikmannakaupum og sölum hjá félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×