Fótbolti

Messi búinn að slá markametið

Nordic Photos / Getty Images
Barcelona minnkaði forskot Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar niður í fjögur stig er það skellti Malaga, 4-1, á heimavelli sínum í kvöld.

Lionel Messi skoraði þrennu fyrir Barcelona í leiknum og þar af komu tvö mörk úr víti. Miðvörðurinn Carles Puyol komst einnig á blað.

Messi er því búinn að skora sjö þrennur í vetur rétt eins og Cristiano Ronaldo. Messi er þess utan búinn að skora 68 mörk í vetur sem er met.

Real Madrid getur náð aftur sjö stiga forskoti en Real mætir Athletic Bilbao í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×