Fótbolti

Esbjerg upp í dönsku úrvalsdeildina

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór í leik með íslenska landsliðinu.
Arnór í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Vilhelm
Arnór Smárason og félagar hans í Esbjerg tryggðu sér í dag sæti í dönsku úrvalsdeildinni á ný eftir aðeins eins árs fjarveru úr deild þeirra bestu þar í landi.

Esbjerg vann í dag 1-0 sigur á Vejle en eina mark leiksins skoraði Sören Rieks á 74. mínútu. Arnór var ekki í leikmannahópi Esbjerg.

Liðið hefur unnið alla leiki sína eftir áramót og er með sextán stiga forystu á næsta lið. Vejle er í þriðja sæti, nítján stigum á eftir, og á ekki lengur möguleika á að ná Esbjerg að stigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×