Fótbolti

Guardiola: Ég elska leikmennina | Myndasyrpa frá kveðjuleiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Pep Guardiola var kvaddur af stuðningsmönnum Barcelona í gær þegar hann stýrði sínum síðasta leik á Nou Camp áður en hann lætur af störfum sem stjóri liðsins í sumar.

Barcelona vann þá 4-0 sigur á Espanyol og skoraði Lionel Messi öll mörk leiksins, þar af tvö af vítapunktinum.

„Sviðsljósið hefur beinst að Lionel allt tímabilið og öfunda ég hann ekki af því," sagði Guardiola eftir leikinn í gær.

„Ég vona að honum gangi áfram vel í framtíðinni. Ég hef reynt að hjálpa honum af fremsta megni og er engin spurning um að hann hefur hjálpað mér að bæta mig í mínu starfi," sagði hann.

Eftir að Messi skoraði fjórða og síðasta markið sitt í leiknum hljóp hann að hliðarlínunni og faðmaði Guardiola. „Ég þakka honum fyrir það. Ég hef fundið fyrir mikilli væntumþykju frá leikmönnum þann tíma sem ég hef verið hér. Ég elska leikmennina mikið og það mun ekki breytast."

Smelltu á myndalbúmið hér fyrir neðan til að sjá myndir frá kveðjuleik Guardiola.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×