Fótbolti

Björn Bergmann opnaði markareikninginn | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Björn Bergmann Sigurðarson skoraði mark Lilleström í 1-1 jafntefli gegn Haugesund í norsku úrvalsdeildinni í dag. Það var hans fyrsta á tímabilinu í Noregi.

Þrátt fyrir það hefur hann þótt spila afar vel í upphafi tímabilsins og fengið mikið hrós fyrir frammistöðuna.

Markið skoraði hann með skalla og má sjá með því að smella hér.

Stefán Logi Magnússon lék allan leikinn í marki Lilleström og Pálmi Rafn Pálmason á miðjunni. Andrés Már Jóhannesson sat allan leikinn á bekknum hjá Haugasund.

Þá hafði Sandnes Ulf betur gegn Hönefoss, 1-0. Kristján Örn Sigurðarson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson voru í byrjunarliði Hönefoss en sá síðarnefndi var tekinn af velli á 78. mínútu.

Veigar Páll Gunnarsson var ónotaður varamaður þegar að Vålerenga vann Fredrikstad, 3-2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×