Fótbolti

Mourinho hafnaði enska landsliðinu árið 2007

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, hefur staðfest að hann hafi hafnað að taka við enska landsliðinu árið 2007. Þá hafði Englandi mistekist að komast á EM 2008 undir stjórn Steve McClaren.

Mourinho var þá hættur hjá Chelsea en hann hafði lítinn áhuga á að þjálfa landslið.

"Ég íhugaði það mjög alvarlega að taka að mér starfið en ákvað að afþakka það þar sem ég vissi að mér myndi leiðast eftir tvo mánuði," sagði Mourinho.

"Landsliðsþjálfarastarfið er ekki heillandi fyrir mig núna. Ég get ekki beðið svona lengi eftir leikjum og stórmótum."

Mourinho segist vera hæstánægður i Madrid og það að þjálfa Real Madrid hafi fullkomnað líf hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×