Fótbolti

Mourinho um Guardiola: Það er enginn fullkominn

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, er ekki í miklu uppáhaldi hjá José Mourinho, þjálfara Real Madrid. Mourinho finnst að Guardiola sé sífellt að reyna selja þá ímynd að hann sé fullkominn.

"Það er ekki eðlilegt að reyna að láta líta út fyrir að þú sért fullkominn því þegar allt kemur til alls er enginn fullkominn. Ég hef aldrei reynt að selja þessa ímynd af sjálfum mér," sagði Mourinho og benti um leið á eigið ágæti.

"Það hefur enginn annar en ég unnið stóru deildirnar þrjár. Það var mitt markmið og er ótrúlegt afrek. Mitt markmið í lífinu er ekki að vinna Barcelona. Það særir mig ekkert meira að tapa fyrir Barcelona en Bayern.

"Það var mikilvægt að stöðva sigurgöngu þeirra á Spáni samt. Ég á tvö ár eftir hér og fjölskyldunni líður vel í Madrid. Við erum ekki að fara neitt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×