Fótbolti

Kaká ætlar að berjast fyrir sæti sínu hjá Real Madrid

Það er nánast orðinn árleg umræða um það hvort Brasilíumaðurinn Kaká fari ekki örugglega frá Real Madrid. Þrátt fyrir takmarkaðan spiltíma hefur þó ekki orðið af því og ekkert fararsnið er á leikmanninum sjálfum.

"Ég á enn þrjú ár eftir af samningi mínum við félagið og ég vil vera hér áfram. Vil taka þátt í því að vinna fleiri titla með þessu félagi," sagði Kaká en honum hefur gengið illa að festa sig í sessi í liðinu.

"Það hvetur mig aðeins áfram að vera í mótlæti. Ég þarf að hafa fyrir hlutunum og það hentar mér vel. Ég mun halda áfram að berjast fyrir tilverurétti mínum hjá félaginu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×