Fótbolti

Brann tapaði enn og aftur

Birkir Már.
Birkir Már.
Birkir Már Sævarsson var í liði Brann en Hannes Þór Halldórsson sat á bekknum er Brann tapaði, 2-1, gegn Haugesund í dag.

Það var fyrrum FH-ingurinn Alexander Söderlund sem kom Haugesund yfir í leiknum en hann kann greinilega betur við sig í heimalandinu en á Íslandi þar sem honum var fyrirmunað að skora. Kim Ojo jafnaði leikinn fyrir Brann skömmu fyrir hlé.

Það var síðan Djurdjic sem skoraði sigurmark Haugesund sjö mínútum fyrir leikslok.

Brann er í 13. sæti deildarinnar og hefur aðeins unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum í tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×