Fótbolti

Busquets: Við megum ekki gefast upp

Þó svo Real Madrid sé komið með sjö stiga forskot í spænsku úrvalsdeildinni og eigi Spánartitilinn næsta vísan þá neitar Sergio Busquets, miðjumaður Barcelona, að játa sig sigraðan.

"Við munum gefa allt sem við eigum þar til í síðasta leik. En nú þurfum við að hugsa um Chelsea. Við megum samt ekki gefast upp," sagði Busquets.

"Stuðningsmennirnir voru frábærir og við fengum frábæran stuðning allt til enda leiksins."

Barcelona tapaði í kvöld í fyrsta skipti tveim leikjum í röð í tæp þrjú ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×