Fótbolti

Íslendingaliðin unnu í Danmörku

Ragnar í leik með FCK.
Ragnar í leik með FCK.
Ragnar Sigurðsson var í liði FCK í dag sem lagði Horsens, 2-1, á heimavelli sínum. Sölvi Geir Ottesen var ekki í leikmannahópi FCK.

Hallgrímur Jónasson og Eyjólfur Héðinsson voru báðir í byrjunarliði SönderjyskE sem vann öruggan heimasigur, 2-0, á HB Köge. Hallgrímur lék allan leikinn en Eyjólfur var tekinn af velli á 59. mínútu.

FCK er sem fyrr á toppi deildarinnar en SönderjyskE er í sjötta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×