Fótbolti

Guardiola ákveður framtíð sína á morgun

Síðustu dagar hafa verið erfiðir hjá Guardiola.
Síðustu dagar hafa verið erfiðir hjá Guardiola.
Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, mun væntanlega gefa það út á morgun hvort hann haldi áfram að þjálfa liðið eður ei.

Guardiola hefur haft þann sið að skrifa aðeins undir eins árs samning við félagið hverju sinni sem hefur skilað sér í fjölda sögusagna í lok síðustu tímabila. Það hefur ekkert breyst núna.

Spænskir fjölmiðlar gera því skóna að vonbrigði síðustu leikja muni gera það að verkum að Guardiola yfirgefi félagið.

Hann hefur verið orðaður við Chelsea og nú enska landsliðið. Hvað verður kemur vonandi í ljós á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×