Fótbolti

Alfreð tryggði Helsingborg stig

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Alfreð fer vel af stað með Helsingborg.
Alfreð fer vel af stað með Helsingborg.
Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason skoraði eina mark Helsingborg í 1-1 jafntefli gegn Mjällby í efstu deild sænsku knattspyrnunnar í kvöld.

Alfreð kom heimamönnum á bragðið á 13. mínútu með sínu þriðja marki á keppnistímabilinu. Liðsfélagi Alfreðs átti þá skalla sem markvörður Mjällby varði með tilþrifum í slána. Alfreð var vel vakandi en þurfti að hafa sig allan við í kapphlaupi við liðsfélaga sinn um að koma boltanum yfir línuna.

Marcus Pode jafnaði fyrir gestina á 78. mínútu og þar við sat.

Helsingborg, sem er ríkjandi sænskur meistari, er í 4.-6. sæti að leiknum loknum með níu stig úr sex leikjum líkt og Mjällby.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×