Íslenski boltinn

Mist hetja Vals | Björk með þrennu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mist ásamt Gunnari Borgþórssyni þjálfara Vals.
Mist ásamt Gunnari Borgþórssyni þjálfara Vals. Mynd / Valur.is
Valur tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Lengjubikars kvenna í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á Stjörnunni í framlengdum leik í Egilshöll. Mist Edvardsdóttir, miðvörður Vals, skoraði bæði mörk Valskvenna.

Fyrr í kvöld tryggðu Blikar sér sæti í úrslitaleiknum með 5-0 sigri á Fylki í Fífunni. Björk Gunnarsdóttir skoraði þrjú marka Breiðabliks og þær Fanndís Friðriksdóttir og Rakel Hönnudóttir sitt markið hvor.

Úrslitaleikur Breiðabliks og Vals fer fram á miðvikudagskvöldið í Kórnum. Liðin áttust við í riðlakeppni Lengjubikarsins um síðustu helgi þar sem Kópavogsstúlkur unnu stórsigur, 6-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×