Fótbolti

Hjálmar og Hjörtur Logi í tíu manna sigurliði Gautaborgar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hjörtur Logi stóð vaktina í vinstri bakverðinum sem fyrr hjá Gautaborgarliðinu.
Hjörtur Logi stóð vaktina í vinstri bakverðinum sem fyrr hjá Gautaborgarliðinu. Nordic Photos / Getty
Hjálmar Jónsson og Hjörtur Logi Valgarðsson spiluðu allan leikinn með IFK Gautaborg sem vann 2-1 sigur á Åtvidaberg í efstu deild sænsku knattspyrnunnar í dag.

Heimamenn í Gautaborg komust í 2-0 með tveimur mörkum undir lok fyrri hálfleiks og útlitið gott.

Kjetill Aæhler, kollegi Hjálmars í miðverðinum hjá Gautaborg, nældi sér í tvö gul spjöld á sjö mínútna kafla um miðjan síðari hálfleikinn. Gestunum tókst í kjölfarið að minnka muninn en komust ekki lengra.

Þetta var annar sigur Gautaborgarliðsins á leiktíðinni. Liðið er með átta stig 8. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×