Fótbolti

Enn eitt tapið hjá Birni Bergmann og Pálma Rafni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tímabilið fer illa af stað hjá Birni Bergmann og félögum.
Tímabilið fer illa af stað hjá Birni Bergmann og félögum. Mynd / lsk.no
Lilleström með Björn Bergmann Gunnlaugsson og Pálma Rafn Pálmason innanborðs tapaði í dag 1-0 á heimavelli gegn toppliði Strömsgodset.

Björn Bergmann og Pálmi Rafn spiluðu allan leikinn fyrir Lilleström sem enn hefur ekki tekist að vinna leik. Liðið er í næstneðsta sæti deildarinnar með þrjú stig.

Strömsgodset situr á toppi deildarinnar með 13 stig en fjölmargir leikir fara fram í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×