Fótbolti

Matthías lagði upp mark Start í jafntefli

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson voru í byrjunarliði Start sem gerði 1-1 jafntefli gegn Ranheim í B-deild norska boltans í dag.

Espen Sögard kom Start yfir á 51. mínútu eftir undirbúning Matthíasar. Heimamenn jöfnuðu metin á 73. mínútu og þar við sat.

Start er enn ósigrað að loknum fjórum umferðum. Liðið hefur unnið tvo leiki og gert tvö jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×