Fótbolti

Þrenna hjá Ronaldo í frábærum sigri Real Madrid

Ronaldo var í stuði í kvöld.
Ronaldo var í stuði í kvöld.
Cristiano Ronaldo sá til þess að forskot Real Madrid á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar er fjögur stig eftir leiki kvöldsins.

Ronaldo skoraði þrennu í 1-4 sigri á nágrönnum sínum í Atletico Madrid í kvöld. Ronaldo er þar með búinn að skora 40 mörk í deildinni og er markahæstur.

Mörk Portúgalans í kvöld voru glæsileg. Fyrsta var beint úr aukaspyrnu, annað með glæsilegu skoti utan teigs en það þriðja kom úr öruggu víti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×