Fótbolti

Mourinho: Ég er frábær þjálfari

Sjálfstraust hefur ekki verið einn af veiku hlekkjunum hjá portúgalska þjálfaranum José Mourinho sem þjálfar Real Madrid. Það hefur gustað um Mourinho hvert sem hann fer en alltaf skilar hann titlum í hús.

Mourinho lítur á sjálfan sig sem hæfileikaríkan þjálfara sem eigi skilið virðingu eftir allt sem hann hefur afrekað.

"Það er aldrei auðvelt að tala um sjálfan sig en miðað við mín afrek þá tel ég mig vera frábæran þjálfara," sagði hinn hógværi Mourinho.

Hann hefur reyndar fullan rétt á því að rífa kjaft eftir að hafa unnið meistaratitil í þrem löndum ásamt mörgu öðru.

"Ég sé sjálfan mig hætta í þjálfun eftir svona 20 ár og vonandi verð ég stoltur af ferli mínum þá."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×