Fótbolti

Guðjón skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Baldvinsson í leik með KR síðastliðið tímabil.
Guðjón Baldvinsson í leik með KR síðastliðið tímabil.
Halmstad vann í dag sinn fyrsta sigur á tímabilinu í sænsku B-deildinni þegar liðið mætti Degerfors. Guðjón Baldvinsson skoraði bæði mörkin í 2-0 sigri og var hetja sinna manna.

Guðjón skoraði bæði mörkin inn í teig eftir fyrirgjöf. Hann spilaði næstum allan leikinn en fékk heiðursskiptingu á lokamínútunum.

Kristinn Steindórsson var einnig í byrjunarliði Halmstad og spilaði á vinstri kantinum. Honum var skipt af velli á 68. mínútu. Jónas Guðni Sævarsson var á bekknum hjá Halmstad og kom ekki við sögu.

Tímabilið í Svíþjóð er nýhafið en þetta var annar leikur Halmstad sem tapaði, 1-0, fyrir Hammarby í fyrstu umferðinni.

Jónas Guðni er nú á sínu þriðja tímabili í Svíþjóð en Guðjón og Kristinn eru nýkomnir til liðsins - Guðjón frá KR og Kristinn frá Breiðabliki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×