Fótbolti

Fabregas: Tímabilið hefur verið eins og draumur

Fabregas var kominn í Barca-treyjuna áður en hann var seldur þangað.
Fabregas var kominn í Barca-treyjuna áður en hann var seldur þangað.
Cesc Fabregas segir að sitt fyrsta tímabil hjá Barcelona hafi verið betra en hann hafi leyft sér að vona og í raun sé það búið að vera draumi líkast.

Fabregas skoraði þegar Barcelona vann HM félagsliða og einnig í Ofurbikarkeppni Evrópu gegn Porto. Barca á einnig möguleika á tveimur öðrum titlum í vetur.

"Þetta hefur verið betra en ég átti von á og svo hef ég spilað meira en ég bjóst við. Ég kom hingað til að læra að verða betri leikmaður og persóna," sagði Fabregas.

"Svo fær maður svona viku þegar við mætum Chelsea í tvígang sem og Real Madrid. Ef við vinnum Real erum við komnir á fullt í titilslaginn heima.

"Þetta er allt nýtt fyrir mér en félagar mínir eru reyndari því að vera að keppa um stóra titla. Fyrir mér er þetta eins og draumur. Ég hef líka lært mikið og tel mig vera orðinn þroskaðri leikmaður."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×