Fótbolti

FCK stendur vel að vígi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ragnar, til hægri, í leik með FCK.
Ragnar, til hægri, í leik með FCK. Nordic Photos / Getty Images
FCK vann í dag fyrri leikinn gegn Sönderjyske, 1-0, í undanúrslitum dönsku bikarkeppninnar í miklum Íslendingaslag.

Ragnar Sigurðsson og Sölvi Geir Ottesen eru á mála hjá FCK og sá fyrrnefndi var í byrjunarliðinu í dag.

Hallgrímur Jónsson og Eyjólfur Héðinsson voru í byrjunarliði SönderjyskE en leiknum lauk með 1-0 sigri FCK. Mustafa Abdellaoue skoraði eina mark leiksins strax á fjórðu mínútu en hann var að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliði FCK.

Síðari leikur liðanna í undanúrslitum bikarsins fer fram í næstu viku en þá mætast liðin á heimavelli SönderjyskE.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×