Fótbolti

Rosenborg marði jafntefli gegn Lilleström

Björn Bergmann.
Björn Bergmann.
Björn Bergmann Sigurðarson og félagar í Lilleström voru grátlega nálægt því að leggja stórlið Rosenborgar af velli í norska boltanum í kvöld.

Lokatölur 2-2 þar sem Mikael Dorsin jafnaði fyrir Rosenborg á 90. mínútu. Johan Andersson og Luke Rodgers skoruðu fyrir Lilleström en Steffen Iversen skoraði fyrra mark Rosenborg.

Björn var í byrjunarliði Lilleström og lék í fremstu víglínu. Hann átti fínan leik. Pálmi Rafn Pálmason var einnig í byrjunarliði Lilleström og lék allan leikinn.

Landsliðsmarkvörðurinn Stefán Logi Magnússon er aftur á móti búinn að missa sæti sitt í byrjunarliði Lilleström og sat á bekknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×