Fótbolti

SönderjyskE hafði betur í Íslendingaslag

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eyjólfur Héðinsson í leik með SönderjyskE.
Eyjólfur Héðinsson í leik með SönderjyskE. Nordic Photos / AFP
Eyjólfur Héðinsson og Hallgrímur Jónasson spiluðu báðir allan leikinn þegar að lið þeirra, SönderjyskE, vann 3-1 sigur á AGF í dönsku úrvalsdeildinni í dag.

Aron Jóhannsson var í byrjunarliði AGF en var tekinn af velli á 66. mínútu, í stöðunni 2-0.

Þetta var annar sigur SönderjyskE í röð í deildinni en liðið er í níunda sæti deildarinnar með 27 stig eftir 23 leiki. AGF er í fimmta sætinu með 34 stig.

Þá var einn leikur í norsku úrvalsdeildinni í dag. Álasund og Tromsö gerðu markalaust jafntefli en þetta var lokaleikur annarrar umferðar tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×