Fiorentina vann AC Milan | Juve getur farið á toppinn í kvöld Stefán Árni Pálsson skrifar 7. apríl 2012 16:30 Amauri skorar hér sigurmarkið fyrir Fiorentina Mynd. Getty Images
Átta leikjum er lokið í ítölsku seríu A-deildinni í knattspyrnu en Fiorentina gerði sér lítið fyrir og vann toppliðið í AC Milan 2-1 á útivelli. Zlatan Ibrahimovic kom Milan yfir eftir hálftíma leik úr vítaspyrnu. Stevan Jovetic jafnaði metin fyrir Fiorentina í upphafi síðari hálfleiksins. Það var síðan Amauri sem skoraði sigurmark gestanna þegar aðeins ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma. AC Milan er enn í efsta sæti deildarinnar með 64 stig en núna munar aðeins tveimur stigum á þeim og Juventus sem á leik til góða síðar í kvöld. Lecce vann frábæran sigur á Roma 4-2 á heimavelli. Lecce gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur fyrstu mörk leiksins en Roma náði að bjarga andlitinu með tveimur mörkum í síðari hálfleiknum. Cagliari og Inter gerði 2-2 jafntefli á heimavelli Cagliari. Davide Astori kom Lecce yfir í upphafi leiksins en Diego Milito jafnaði síðan metin aðeins einni mínútu síðar. Mauricio Pinilla kom heimamönnum síðan aftur yfir þegar hálftími var eftir af leiknum . Esteban Cambiasso, leikmaður Inter, jafnaði síðan leikinn nokkrum mínútum síðar og því fór sem fór.Úrslit dagsins: AC Milan - Fiorentina - 1 - 2 Atalanta - Siena - 1 - 2 Cagliari - Inter Milan - 2 - 2 Cesena - Bologna 0 - 0 Chievo - Catania - 3 - 2 Lecce - AS Roma - 4 - 2 Novara - Genoa - 1 - 1 Udinese - Parma 3 - 1
Ítalski boltinn Mest lesið Allt annað en sáttur með Frey Fótbolti Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Körfubolti Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Enski boltinn „Fyrr skal ég dauður liggja“ Enski boltinn „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Körfubolti Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ Körfubolti Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Körfubolti Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Íslenski boltinn „Ómetanlegar“ minningar Nelson feðga Sport „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Fótbolti Fleiri fréttir Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni ÍA fær Baldvin frá Fjölni Setur magnað met gegn Íslandi og Glódís upp fyrir Katrínu Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Sædís mætir Palestínu Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Sjá meira