Fótbolti

Real Madrid tapaði stigum á heimavelli | Nú munar aðeins 4 stigum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/AP
Real Madrid náði aðeins markalausu jafntefli á móti Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld og spennan jókst því í baráttu Real og Barcelona um spænska meistaratitilinn.

Real Madrid var tíu stigum á undan Barcelona fyrir nokkrum vikum en efrir þrjú jafntefli í síðustu fimm leikjum er forystan komin niður í fjögur stig. Barcelona-liðið er búið að vinna níu deildarleiki í röð þar á meðal 4-1 útisigur á Real Zaragoza í gær.

Valencia varð þarna fyrsta liðið til að halda hreinu á móti Real Madrid á Santiago Bernabeu í spænsku deildinni í vetur en Real var fyrir leikinn búið að skora 60 mörk í 15 fyrstu heimaleikjum sínum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×