Fótbolti

Alfreð: Lofaði liðsfélögum í hálfleik að hann myndi skora í seinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason.
Alfreð Finnbogason var hetja Helsingborg í gær þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Elfsborg í uppgjöri tveggja af sterkustu liðum sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Alfreð kom Helsingborg í 1-0 á 15. mínútu og fékk síðan algjört dauðafæri til að bæta við öðru marki sínu skömmu síðar en klikkaði þá af mjög stuttu færi. Elfsborg náði síðan að jafna metin í 1-1 fyrir hálfleik.

„Ég sagði við liðsfélagana í hálfleik að ef ég fengi annað tækifæri þá myndi ég nýta það. Þetta var versta klikkið mitt á ferlinum. Ég skil ekki hvernig ég fór eiginlega að þessu," sagði Alfreð Finnbogason í sjónvarpsviðtali við Canal Plus.

Alfreð stóð við stóru orðin því hann tryggði Helsingborg öll þrjú stigin með því að skora sigurmarkið á 77. mínútu leiksins.

Það er líka hægt að sjá viðtal við Alfreð inn á heimasíðu Helsingborg með því að smella hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×