Fótbolti

Bætir Messi markametið hjá Barcelona? | bein útsending í kvöld

Lionel Messi er í þeirri aðstöðu að geta jafnað og bætt markametið hjá spænska stórliðinu Barcelona í kvöld.
Lionel Messi er í þeirri aðstöðu að geta jafnað og bætt markametið hjá spænska stórliðinu Barcelona í kvöld. Getty Images / Nordic Photos
Lionel Messi er í þeirri aðstöðu að geta jafnað og bætt markametið hjá spænska stórliðinu Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti Granada í deildarkeppninni. Argentínumaðurinn hefur skorað 231 mark fyrir félagið en félagsmetið er í eigu Cesar Rodriguez sem skoraði 232 mörk á sínum ferli. Leikur Barcelona og Granada verður í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og hefst leikurinn kl. 20.00.

Barcelona má ekki gera nein mistök það sem eftir er tímabilsins ætli liðið sér að verja Spánarmeistaratitilinn. Real Madrid er með 71 stig að loknum 27 umferðum en Barcelona leikur sinn 28 leik í kvöld og er liðið 8 stigum á eftir Real Madrid.

Rodriguez var sagður hafa skorað alls 235 mörk fyrir Barcelona en við nánari athugun reyndist hann vera með of mörg mörk skráð á sig.

Messi, sem er aðeins 24 ára gamall, hefur þrívegis verið valinn besti leikmaður heims af FIFA. Hann hefur skorað 45 mörk í 39 leikjum á þessari leiktíð. Messi skoraði síðara mark Barcelona í 2-0 sigri liðsins gegn Sevilla s.l. laugardag.

Rodriguez var á hápunkti ferilsins snemma á fimmta áratug síðustu aldar og hann á met þegar opinberir leikir eru teknir saman. Paulino Alcantara hefur hinsvegar skorað flest mörk allra ef vináttu og æfingaleikir eru teknir með í reikninginn. Hann skoraði 369 mökr í 357 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×