Fótbolti

Eyjólfur Héðinsson með sigurmark SönderjyskE

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Eyjólfur í baráttunni með SönderjyskE.
Eyjólfur í baráttunni með SönderjyskE. Nordic Photos / Getty
Eyjólfur Héðinsson og Hallgrímur Jónasson voru í byrjunarliði SönderjyskE sem vann 2-1 útisigur á AaB í Alaborg í efstu deild danska boltans í dag.

Sönderjyske komst yfir eftir rúmlega hálftíma leik og hafði forystu í hálfleik. Stundarfjórðungi fyrir leikslok jöfnuðu heimamenn metin en þá tók Eyjólfur til sinna ráða. Hann skoraði tíu mínútum fyrir leikslok og tryggði SönderjyskE þrjú dýrmæt stig í botnbaráttunni.

Eyjólfur lék allan leikinn á miðjunni en Hallgrímur var á sínum stað í vörninni. Arnar Darri Pétursson var ekki í leikmannahópi Sönderjyske í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×