Fótbolti

Sara Björk og Þóra meistarar meistaranna

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sara Björk og Þóra féllu úr leik í Meistaradeildinni í vikunni gegn Frankfurt.
Sara Björk og Þóra féllu úr leik í Meistaradeildinni í vikunni gegn Frankfurt. Mynd / Daníel
Landsliðskonurnar Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björk Helgadóttir léku allan leikinn með liði Malmö sem sigraði Kopparbergs/Göteborgs í Ofurbikarnum í Svíþjóð í dag.

Leikurinn er árleg viðureign landsmeistara og bikarmeistara sem markar upphafið að knattspyrnuvertíðinni í Svíþjóð.

Anja Mittag skoraði sigumark Malmö mínútu fyrir leikslok.

Íslendingar áttu einnig sinn fulltrúa í karlaleiknum í gær. Alfreð Finnbogason lagði þá upp annað af mörkum Helsingborgar í 2-0 sigri á AIK.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×