Fótbolti

Di Maria klár í bátana

Argentínski vængmaðurinn Angel di Maria, leikmaður Real Madrid, er búinn að jafna sig af meiðslum og verður klár í slaginn um helgina gegn Osasuna.

Þessi 24 ára leikmaður hefur verið frá keppni síðan 18. febrúar vegna meiðsla á læri. Það hefur tekið lengri tíma en í fyrstu var talið fyrir hann að jafna sig.

Di Maria mun líklega ekki byrja leikinn en fastlega er búist við því að hann spili að minnsta kosti 20 mínútur.

Hann hefði getað spilað gegn APOEL í Meistaradeildinni en José Mourinho, þjálfari Real Madrid, ákvað að tefla ekki á tvær hættur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×