Fótbolti

Barcelona taplaust í síðustu 50 leikjum Iniesta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andres Iniesta.
Andres Iniesta. Mynd/Nordic Photos/Getty
Andres Iniesta jafnaði met Emilio Butragueno í gær þegar hann hjálpaði Barcelona að vinna 2-0 sigur á Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni. Iniesta, sem lagði upp seinna mark liðsins fyrir Lionel Messi, hefur nefnilega ekki tapað í síðustu 50 deildarleikjum sínum með Barca.

Síðasti tapleikur Barcelona með Iniesta innanborðs var á móti Hercules í 2. umferð 2010-11 tímabilsins. Hann hefur síðan spilað 50 leiki, Barca hefur unnið 42 og átta hafa endaði með jafntefli. Þegar Emilio Butragueno setti metið með Real Madrid frá 1987 til 1989 þá vann liðið 34 leiki og gerði 16 jafntefli.

Andres Iniesta hefur spilað 18 leikjanna á þessu tímabili og Barca hefur unnið 14 þeirra. Hann hefur skorað eitt mark og gefið sjö stoðsendingar í þessum 18 leikjum.

Andres Iniesta getur bætt metið þegar Barcelona fær Granada í heimsókn á Camp Nou á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×