Fótbolti

Svekkjandi hjá Rúrik og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rúrik Gíslason.
Rúrik Gíslason. Mynd/Nordic Photos/Getty
Rúrik Gíslason og félagar í OB þurftu að sætta sig við 2-2 jafntefli á heimavelli á móti Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld en þetta var fyrsti leikur liðsins eftir vetrarfrí.

Silkeborg skoraði tvö mörk á síðustu tuttugu mínútum leiksins þar á meðal sigurmarkið í uppbótartíma leiksins.

Rúrik Gíslason var í byrjunarliðinu og lék fyrstu 82 mínúturnar. Hann var farinn útaf þegar Silkeborg jafnaði metin.

Hans Henrik Andreasen og Andreas Johansson skoruðu mörk OB á 36. og 46. mínútu leiksins. OB er í 8. sæti deildarinnar stigi á eftir Silkeborg og Aalborg BK sem eru í næstu sætum fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×