Fótbolti

Messi-sýningin heldur áfram

Það virðist ekkert geta stöðvað Argentínumanninn Lionel Messi þessa dagana. Hann skoraði í kvöld bæði mörk Barcelona í útisigri á Racing Santander.

Fyrra markið kom í fyrri hálfleik. Þá framlengdi hann sendingu Cesc Fabregas í netið. Hann bætti svo öðru marki við í síðari hálfleik og gulltryggði sigurinn. Nokkur hiti var í mönnum í leiknum og sérstaklega virtist leikmönnum Santander vera í nöp við Sergi Busquets.

Barcelona er nú sem fyrr tíu stigum á eftir toppliði Real Madrid og líkurnar á því að Barcelona verji meistaratitilinn eru nánast engar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×