Erlent

Kynningarmyndband um tökur Game of Thrones á Íslandi

Kynningarmyndband um nýja þáttaröð af sjónvarpsþættinum Game of Thrones var opinberað á YouTube í dag. Framleiðendur þáttanna fara þar yfir tökur á Íslandi.

Nokkrir af helstu leikurum Game of Thrones koma fram í myndbandinu ásamt framleiðendum og virðast flestir vera nokkuð ánægðir með dvölina hér á landi.

Stór hluti nýju seríunnar var tekin hér á landi en þær senur tengjast flestar sögu Næturvörðanna og hetjunni Jon Snow.

Önnur sería af Game of Thrones verður frumsýnd 1. apríl næstkomandi.

Hægt er að sjá myndbandið hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×